„Það bjóst enginn við að við myndum fara svona langt. Það eru tólf ár síðan við komumst síðast svona langt," sagði Patrice Evra varnarmaður Juventus eftir 2-1 sigurinn á Real Madrid í kvöld.
„Mikilvægast er að ná sigri. Það er aldrei auðvelt gegn Real og ég er mjög stoltur af liðsfélögum mínum og starfsfólkinu. Við undirbjuggum okkur mjög vel og náðum sigrinum. Við erum mjög vongóðir að komast áfram."

Carlos Tevez skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur.
„Carlos Tevez er með United blóð eins og ég. Hann er meistari. Hann hefur átt frábært tímabil og hann vill vinna Meistaradeildina. Hann er stórkostlegur atvinnumaður," sagði Evra.
Athugasemdir