Selfoss og BÍ/Bolungarvík munu mætast á Selfossi í fyrstu umferðinni 1. deildinni á laugardag.
Liðin áttu að mætast á Ísafirði en þar er ennþá snjór og því hefur verið víxlað á heimaleikjum.
Liðin áttu að mætast á Ísafirði en þar er ennþá snjór og því hefur verið víxlað á heimaleikjum.
Samkvæmt heimildum sunnlenska.is er líklegra að leikurinn fari fram á gervigrasvellinum á Selfossi þar sem kalt vor hefur einnig haft sín áhrif á velli sunnan lands.
Síðari leikur liðanna í sumar mun síðan fara fram á Ísafirði í júlí.
Keppni í 1. deildinni hefst á föstudagskvöld með leik Gróttu og HK en á laugardag eru fimm leikir á dagskrá.
Athugasemdir