Ítalski stórtenórinn Andrea Bocelli mun sjá um að hita áhorfendur upp fyrir leik Leicester og Everton í ensku úrvalsdeildinni á laugardag.
Leiksins er beðið með mikilli eftirvæntingu í Leicester borg enda er þetta fyrsti leikur liðsins eftir að það varð Englandsmeistari síðastliðinn mánudag.
Bocelli er vel til vina við landa sinn, Claudio Ranieri, sem stýrir Leicester og var búinn að lofa honum að hann myndi mæta á King Power leikvanginn tækist liðinu að vinna Englandsmeistaratitilinn.
Bocelli er mikill knattspyrnuáhugamaður en hann missti sjónina í slysi þegar hann var að spila fótbolta, tólf ára að aldri.
Athugasemdir