Spænski markvörðurinn Iker Casillas segir ekki koma til greina að yfirgefa Porto í sumar.
Þessi 34 ára gamli reynslubolti hefur verið orðaður við bandarísk lið að undanförnu en hann ætlar að halda áfram að spila í Portúgal.
„Ég er ekki að fara til Miami. Ég er mjög ánægður hjá Porto og hér hefur mér verið mjög vel tekið," segir Casillas.
Árangur Porto í vetur hefur valdið miklum vonbrigðum en liðið er ekki að keppa um titilinn þegar tvær umferðir eru eftir af portúgölsku úrvalsdeildinni en Sporting Lisabon og Benfica heyja baráttu um efsta sætið.
„Við vildum vinna deildina í ár en það gekk því miður ekki upp. Á næstu leiktíð ætlum við okkur að vinna," segir Casillas.
Athugasemdir