Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 05. maí 2016 05:55
Arnar Geir Halldórsson
Ísland í dag - Hverjar verða meistarar meistaranna?
Blikar mæta Stjörnunni
Blikar mæta Stjörnunni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Einn leikur fer fram hér á landi í dag og er hann ekki af lakari endanum.

Íslandsmeistarar Breiðabliks mæta bikarmeisturum Stjörnunnar í Meistarakeppni KSÍ. Leikið er á heimavelli Stjörnunnar, Samsung vellinum í Garðabæ og hefst leikurinn klukkan 19:15.

Fyrir þá sem ekki eiga heimangengt í Garðabæinn í kvöld verður boðið upp á beina textalýsingu hér á Fótbolti.net en leikurinn verður einnig í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2.

Leikur dagsins

Meistarakeppni KSÍ konur
19:15 Stjarnan-Breiðablik (Samsung völlurinn)
Athugasemdir
banner
banner
banner