Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 05. maí 2016 07:00
Arnar Geir Halldórsson
John Terry svaf ekki vegna Thierry Henry
Terry og Henry fyrir nokkrum árum
Terry og Henry fyrir nokkrum árum
Mynd: Getty Images
John Terry var í viðtali hjá stuðningsmannasíðu Chelsea á dögunum og var meðal annars spurður að því hver væri erfiðasti andstæðingur sem hann hefði mætt.

Terry hefur verið lengi að og mætt mörgum af bestu sóknarmönnum á átján ára ferli sínum en það er Arsenal goðsögnin Thierry Henry sem stendur upp úr.

„Ég verð að segja Thierry Henry. Hann hafði allt. Ég svaf ekki nóttina áður en ég átti að mæta honum og ég kveið alltaf fyrir leikjunum gegn honum."

„Hann var algjör heiðursmaður utan vallar líka. Hann hrósaði mér oft og orð hans hvöttu mig til að verða betri,"
segir Terry.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner