Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari Stjörnunnar var brattur, þrátt fyrir tap gegn Breiðablik í meistarakeppninni sem fram fór í kvöld.
Mikill vindur setti strik í reikninginn á Samsung vellinum og var leikurinn eilítið eftir því. Ólafur var ánægður með hvað sitt lið gerði úr aðstæðunum.
Mikill vindur setti strik í reikninginn á Samsung vellinum og var leikurinn eilítið eftir því. Ólafur var ánægður með hvað sitt lið gerði úr aðstæðunum.
Lestu um leikinn: Stjarnan 3 - 4 Breiðablik
„Ég er ánægður með leikinn, það var jafnræði í þessu, við höfðum frekar yfirhöndina ef eitthvað var en ég er aldrei ánægður með að tapa."
„Við vorum að spila fínan fótbolta, við vorum að spila vel miðað við aðstæður, það var erfitt að leika á móti vindinum en við leystum það ágætlega og við vorum ekki að gefa færi á okkur. Ég er sáttur við það."
Mikil styrking hefur átt sér stað hjá mörgum liðum í deildinni og spáir Ólafur mest spennandi deild frá upphafi.
„Mjög vel miðað við þetta, þetta verður mest spennandi íslandsmót frá upphafi kvennafótboltans."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir