Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 05. maí 2016 12:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Ronaldo elskar að vinna með Zidane
Ronaldo og Zidane eru miklir mátar
Ronaldo og Zidane eru miklir mátar
Mynd: Getty Images
Real Madrid hefur gengið ansi vel eftir að Zinedine Zidane tók við þjálfun liðsins um áramótin og Cristiano Ronaldo er hæstánægður með Frakkann og vill halda honum sem þjálfara.

Zidane kom Madrid í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í 14. skipti eftir 1-0 sigur á Manchester City á Santiago Bernabeu í gærkvöldi eftir að fyrri leik liðanna lauk með 0-0 jafntefli.

Liðið er einnig í harðri baráttu um spænska deildartitilinn og eru aðeins einu stigi á eftir Barcelona og Atletico þegar tveir leikir eru eftir.

„Hann er að standa sig frábærlega. Við erum allir að hjálpa hvorum öðrum og honum,"

„Ég vona að hann haldi áfram. Ég dái hann sem þjálfara og manneskju. Við höfum alltaf stutt við Zizou og hann er auðmjúkur. Hann kann að hlusta og það er mikilvægt," sagði Ronaldo.
Athugasemdir
banner
banner