Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 05. júlí 2015 19:05
Elvar Geir Magnússon
KR-vellinum
Byrjunarlið KR og FH: Skúli Jón á bekknum
Gonzalo Balbi er ekki með KR í kvöld.
Gonzalo Balbi er ekki með KR í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tvö efstu lið Pepsi-deildarinnar mætast í bikarnum klukkan 20. KR og FH eigast við á KR-vellinum en með því að smella hér ferðu í beina textalýsingu frá leiknum.

Skúli Jón Friðgeirsson varð fyrir smávægilegum meiðslum þegar KR gerði 1-1 jafntefli við Cork í forkeppni Evrópudeildarinnar á fimmtudag. Hann er á bekknum í kvöld. Gonzalo Balbi meiddist í þeim leik og er ekki í hóp.

Guðmann Þórisson er meðal varamanna hjá FH og einnig Jonathan Hendrickx sem er í fyrsta sinn í hópnum eftir meiðsli á liðböndum. Böddi löpp, Böðvar Böðvarsson, er víst meiddur og ekki með FH en hann hefur átt frábært tímabil.

Byrjunarliðin má sjá hér að neðan.

Byrjunarlið KR:
1. Stefán Logi Magnússon (m)
2. Grétar Sigfinnur Sigurðarson
3. Rasmus Steenberg Christiansen
6. Gunnar Þór Gunnarsson
7. Gary John Martin
8. Jónas Guðni Sævarsson
10. Pálmi Rafn Pálmason
18. Aron Bjarki Jósepsson
19. Sören Frederiksen
20. Jacob Toppel Schoop
22. Óskar Örn Hauksson

Byrjunarlið FH:
1. Róbert Örn Óskarsson (m)
4. Samuel Lee Tillen
5. Pétur Viðarsson
7. Steven Lennon
9. Þórarinn Ingi Valdimarsson
10. Davíð Þór Viðarsson
11. Atli Guðnason
13. Bjarni Þór Viðarsson
20. Kassim Doumbia
22. Jeremy Serwy
23. Brynjar Ásgeir Guðmundsson
Athugasemdir
banner
banner
banner