Sóknarmaðurinn Þorsteinn Már Ragnarsson kom inn af bekknum þegar KR vann 2-1 sigur gegn FH í Borgunarbikarnum í kvöld.
Athygli vakti að Þorsteinn var með tvo miða sem Bjarni Guðjónsson þjálfari lét hann hafa með orðsendingum til samherja hans. Jose Mourinho, stjóri Chelsea, hefur leikið sama leik.
Athygli vakti að Þorsteinn var með tvo miða sem Bjarni Guðjónsson þjálfari lét hann hafa með orðsendingum til samherja hans. Jose Mourinho, stjóri Chelsea, hefur leikið sama leik.
Þorsteinn lét Jónas Guðna Sævarsson fá annan af miðunum en hinn fékk Rasmus Christiansen. Rasmus geymdi miðann í stuttbuxunum þar sem boltinn var nýkominn í leik þegar hann fékk miðann í hendurnar.
„Við breyttum aðeins leikkerfinu, fórum í 3-5-2," sagði Bjarni við fjölmiðla eftir leik.
„Í staðinn fyrir að kalla marga leikmenn til okkar er betra að henda út miðum til að þeir sjái bara hvaða stöðu hver og einn á að vera í og hvað þeir eiga að gera. Þetta er eitthvað sem þeir þekkja þannig að skilaboðin skila sér mun hraðar og betur á miðunum."
Smelltu hér til að lesa nánar um leikinn
Athugasemdir