Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 05. júlí 2015 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Heimasíða Valencia 
Valencia fær efnilegan sóknarmann frá Celta Vigo (Staðfest)
Santi Mina í búningi Valencia
Santi Mina í búningi Valencia
Mynd: Valencia
Valencia hefur staðfest kaup á Santi Mina, efnilegum sóknarmanni frá Celta Vigo.

Mina gerði sex ára samning við Valencia og mun berjast við leikmenn eins og Alvaro Negredo og Rodrigo um sæti byrjunarliðinu.

"Ég yfirgef félag sem hefur gefið mér allt og stuðningsmenn sem hafa látið mér líða vel, svo ég mun aldrei gleyma þeim," sagði Mina við komu sína til Valencia.

"Ég veit þó að stuðningsmenn Valencia eru ótrúlegir og mér hlakkar til að spila fyrir framan þá á Mestalla."

Kaupverðið á Mina er talið vera 10 milljónir evra, en hann skoraði níu mörk fyrir Celta á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner