Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 05. ágúst 2013 19:48
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: ISP 
Costa líklega ekki á leið til Liverpool
Mynd: Getty Images
Liverpool er talið hafa boðið 25 milljónir evra í Diego Costa, miðjumann Atletico Madrid, á dögunum.

Costa segist ekkert hafa frétt af boði Liverpool og segist vera ánægður með lífið í spænsku höfuðborginni.

,,Ég veit ekkert um tilboð frá Liverpool, eins og er þá er ég hér og er ánægður," sagði Costa.

,,Í alvöru, ég hef ekkert að segja. Ég er búinn að vera í Argentínu og Úrúgvæ og hef ekkert heyrt um neitt tilboð.

,,Ég er ánægður hérna, ef félagið vill halda mér þá mun ég vera hér áfram."

Athugasemdir
banner
banner