Brendan Rodgers ætlar að taka sér frí frá fótbolta í einhvern tíma áður en hann skellir sér í slaginn á nýjan leik.
Rodgers var rekinn frá Liverpool í gær eftir að hafa stýrt liðinu frá því árið 2012.
Rodgers var rekinn frá Liverpool í gær eftir að hafa stýrt liðinu frá því árið 2012.
Norður-Írinn er mjög svekktur með ákvörðun Liverpool samkvæmt frétt Liverpool Echo í dag.
Liverpool hafði einungis unnið einn af síðustu níu leikjum þegar ákveðið var að reka Rodgers í gær.
Rodgers ætlar sjálfur að taka sér frí frá fótbolta áður en hann ákveður næstu skref á ferli sínum.
Athugasemdir