Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 05. október 2015 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Tísti í fyrsta skipti í 133 daga þegar Rodgers var rekinn
Mynd: Getty Images
Twitter notandinn @CoutinhoTouch er stuðningsmaður Liverpool og fékk sig heldur betur fullsaddan á gengi liðsins undir stjórn Brendan Rodgers.

Þegar Liverpool tapaði 6-1 fyrir Stoke City á lokadegi síðasta tímabils lýsti hann því yfir á Twitter að hann skildi ekki tísta aftur fyrr en Rodgers yrði rekinn frá félaginu.

Tístið hans fékk töluverða athygli á sínum tíma og hefur því verið endurtíst yfir fjögur þúsund sinnum.

Paddy Power veðmálasíðan fræga er meðal þeirra sem hafa vakið athygli á tístverkfalli @CoutinhoTouch sem var mjög virkur á Twitter fyrir tístið.









Athugasemdir
banner
banner