Chelsea gerði í kvöld 1-1 jafntefli gegn Maribor á útivelli og heldur félagið því áfram að vera ósigrað á tímabilinu.
Alls hafa leikmenn Jose Mourinho spilað 16 leiki frá upphafi tímabilsins í öllum keppnum án þess að tapa leik.
Alls hafa leikmenn Jose Mourinho spilað 16 leiki frá upphafi tímabilsins í öllum keppnum án þess að tapa leik.
Þetta frábæra gengi liðsins er jöfnun á félagsmeti.
Chelsea er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með 26 stig úr 10 leikjum. Þá er liðið að sama skapi á toppi riðils síns í Meistaradeildinni með 8 stig úr 4 leikjum.
Athugasemdir