Fotbolti.net
05.12.15 - 17:04
Magnús Már Einarsson

Markalaust í fjórum af síðustu sex heimaleikjum Man Utd

Louis van Gaal stjóri Manchester United.

Louis van Gaal stjóri Manchester United.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United og West Ham gerðu markalaust jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Margir stuðningsmenn Manchester United eru mjög þreyttir á markaþurrð liðsins en fjórir af síðustu sex leikjum liðsins á Old Trafford hafa endað með markalausu jafntefli.

Samtals hefur Manchester United gert fimm markalaus jafntefli síðan 25. október síðastliðinn.

Á samskiptamiðlum eru margir stuðningsmenn United að kvarta yfir leikstíl Louis van Gaal en liðið er að skora lítið undir hans stjórn þessa dagana,
Síðustu heimaleikir Manchester United:
Manchester United 0 - 0 Manchester City
Manchester United 0 - 0 Middlesbrough (1-3 í vító)
Manchester United 1 - 0 CSKA Moskva
Manchester United 2 - 0 WBA
Manchester United 0 - 0 PSV Eindhoven
Manchester United 0 - 0 West Ham
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.