Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 05. desember 2017 22:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Einkunnir Man Utd gegn CSKA Moskvu: Shaw með þeim bestu
Tveir bestu menn vallarins, Shaw og Rashford.
Tveir bestu menn vallarins, Shaw og Rashford.
Mynd: Getty Images
Manchester United lagði CSKA Moskvu að velli í Meistaradeildinni í kvöld og tryggði sér þar með þáttökurétt í 16-liða úrslitunum. United vann riðilinn sinn í leiðinni með 15 stig.

Luke Shaw fékk tækifæri hjá Jose Mourinho í kvöld og nýtti það vel. Hann var með bestu mönnum vallarins. Stuðningsmenn Manchester United völdu hann sem mann leiksins.

Hann er þó ekki maður leiksins hjá Sky Sports, það er Marcus Rashford sem fær þá nafnbót.

Rashford fær 9, en Shaw kemur næstu með 8.

Hér að neðan eru einkunnagjöfin í heild sinni.

Einkunnir Manchester United: Romero (7), Shaw (8), Lindelof (7), Smalling (7), Valencia (7), Herrera (6), Blind (6), Mata (7), Pogba (7), Rashford (9), Lukaku (7).

Varamenn: McTominay (6), Tuanzebe (6), Martial (6).

Maður leiksins: Marcus Rashford.



Athugasemdir
banner
banner
banner