Liverpool þarf stig úr heimaleik sínum gegn Spartak Moskvu í lokaumferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar á morgun til að vera öruggt með sæti í 16-liða úrslitum.
Sigur tryggir liðinu efsta sæti riðilsins.
Sigur tryggir liðinu efsta sæti riðilsins.
Joe Gomez og Ragnar Klavan eru báðir klárir í slaginn og Jurgen Klopp því kominn með fleiri kosti til að nota í varnarleiknum.
Gomez og Klavan misstu báðir af 5-1 sigrinum gegn Brighton um liðna helgi þar sem þeir voru veikir.
Joel Matip og Adam Lallana eru enn fjarri góðu gamni og verða ekki með í leiknum annað kvöld.
Athugasemdir