Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 05. desember 2017 19:28
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Messi fær hvíld í kvöld - Suarez byrjar
Mynd: Getty Images
Lionel Messi er hvíldur og er ekki í byrjunarliði Barcelona sem mætir Sporting Lisbon í Meistaradeildinni í kvöld.

Messi er á bekknum ásamt lykilmönnum eins og Marc-Andre ter Stegen, Sergio Busquets, Paulinho og Sergi Roberto. Ernesto Valverde, stjóri Börsunga, gerir margar breytingar.

Luis Suarez er þó í byrjunarliðinu og hann byrjar frammi í kvöld ásamt Paco Alcacer og Aleix Vidal.

Barcelona þarf að hafa litlar áhyggjur af úrslitum í kvöld, Börsungar hafa tryggt sér sigur í D-riðlinum. Juventus mun fylgja ef þeir vinna í Grikklandi gegn Olympiakos eða ef Sporting tekst ekki að vinna.

Byrjunarlið Barcelona:Cillesen, Semedo, Pique, Vermaelen, Digne, Andre Gomes, Rakitic, D. Suarez, Vidal, Alcacer, L. Suarez.

Sjá einnig:
Byrjunarliðin í Meistaradeildinni: Shaw fær tækifæri



Athugasemdir
banner
banner