Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   lau 06. febrúar 2016 15:01
Ívan Guðjón Baldursson
Mahrez: Bjuggumst ekki við að vinna 3-1
Riyad Mahrez átti stórleik á Etihad.
Riyad Mahrez átti stórleik á Etihad.
Mynd: Getty Images
Riyad Mahrez hefur verið í hörkuformi fyrir Leicester City á tímabilinu og átti stórleik er liðið hafði betur í toppslagnum gegn Manchester City í dag.

Mahrez lagði fyrsta mark leiksins upp með aukaspyrnu fyrir Robert Huth og tvöfaldaði sjálfur forystuna með glæsilegu marki í upphafi síðari hálfleiks.

„Þetta var frábær sigur en við eigum enn eftir að spila marga leiki svo við getum ekki byrjað að tala um titilinn alveg strax," sagði Mahrez við BT Sport eftir leik.

„Við verðum að halda áfram að berjast allt til enda og sjáum svo til hvort við getum verið með í titilbaráttunni.

„Við bjuggumst ekki við að vinna 3-1 en ætlum bara að halda áfram að leyfa okkur að dreyma og sjá hvað setur."

Athugasemdir
banner
banner
banner