Roberto Mancini, þjálfari Inter, var rekinn upp í stúku er Inter tapaði 3-0 í erkifjendaslag gegn AC Milan.
Mancini var sendur upp í stúku fyrir kjaftbrúk og fyrir að sýna stuðningsmönnum Milan puttann.
Mancini var sendur upp í stúku fyrir kjaftbrúk og fyrir að sýna stuðningsmönnum Milan puttann.
„Það er bara hér á Ítalíu sem þjálfarar eru reknir af velli og settir í leikbann. Þetta er ekki gert í neinu öðru landi nema að þjálfararnir geri eitthvað mikið af sér. Ekki láta mig tala of mikið um þetta, þá gæti ég sagt það sem mér býr raunverulega í brjósti og þá endar illa," sagði Mancini á fréttamannafundi fyrir leik Inter gegn Verona um helgina.
„Ég var aldrei sendur upp í stúku á Englandi eða í Tyrklandi, þar er hægt að tala við fjórða dómarann án afleiðinga, það er eðlilegt og þannig á það að vera."
Mancini var spurður út í leikstíl Inter, sem er af mörgum talinn vera neikvæður og hundleiðinlegur. Hann svaraði því einfaldlega að ekkert lið á Ítalíu spilar virkilega góðan fótbolta því leikurinn sé of taktískur þar.
„Það eru bara fjögur eða fimm félög í heiminum sem spila virkilega góðan fótbolta, það eru liðin sem hafa alla bestu leikmennina, eins og Bayern München, Barcelona, Manchester City, Real Madrid og Paris Saint-Germain.
„Það er erfitt að spila glimrandi sóknarbolta í ítölsku deildinni því liðin eru of taktísk, skilja marga menn eftir í vörn og eru snögg að loka svæðum."
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir