Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 06. febrúar 2016 10:39
Ívan Guðjón Baldursson
Pirlo: Enginn sem býr yfir jafn miklum gæðum og Özil
Mynd: Getty Images
Andrea Pirlo er ekki lengur partur af Evrópuboltanum en fylgist þó enn grannt með gangi mála á meginlandi Evrópu.

Pirlo segist fylgjast vel með helstu deildum í Evrópu og telur Mesut Özil, stórstjörnu Arsenal, bera höfuð og herðar yfir aðra leikmenn.

„Hann er líklega mest skapandi leikmaður Evrópuboltans um þessar mundir," sagði Pirlo við Shortlist Magazine.

„Hann býr til ótrúlegt magn færa fyrir samherja sína, það er enginn annar skapandi leikmaður í Evrópu sem býr yfir jafn miklum gæðum og Özil."

Özil er búinn að leggja upp 16 mörk í ensku úrvalsdeildinni og er aðeins fjórum stoðsendingum frá því að bæta stoðsendingamet frönsku goðsagnarinnar Thierry Henry.

Pirlo er goðsögn hjá AC Milan, Juventus og ítalska landsliðinu en leikur nú fyrir New York City FC í MLS deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner