lau 06. febrúar 2016 17:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pochettino: Mjög stoltur af leikmönnunum
Þessi maður er búinn að gera frábæra hluti með Tottenham
Þessi maður er búinn að gera frábæra hluti með Tottenham
Mynd: Getty Images
Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, var skiljanlega mjög ánægður eftir 1-0 sigur á Watford í dag.

Kieran Trippier skoraði eina mark leiksins, en með sigrinum skaust Tottenham upp fyrir Manchester City í annað sæti deildarinnar.

"Ég er mjög stoltur af leikmönnunum mínum," var það fyrsta sem Pochettino sagði eftir leik.

"Við verðum að vera rólegir. Við erum í mjög góðri stöðu í deildinni, en frá upphafi tímabils höfum við talað um það að taka eitt skref í einu. Við erum með mjög ungan hóp svo það er mikilvægt að halda áfram og taka hvern leik og keppni og vera tilbúnir að keppa."

"Við verðum að fara varlega og halda áfram að vinna á sama hátt. Í knattspyrnu getur þú aldrei hætt. Þú verður alltaf að halda áfram að bæta þig og við getum ennþá bætt nokkra hluti."

"Við höfum góða hugmynd að því hvernig við viljum byggja hópinn upp fyrir framtíðina og það er mikilvægt fyrir okkar að halda áfram að nota þessa hugmyndafræði sem við höfum verið að nota."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner