lau 06. febrúar 2016 17:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stóri Sam: Hélt að þetta væri búið þegar við vorum 0-2 undir
Stóri Sam
Stóri Sam
Mynd: Getty Images
Sam Allardyce, stjóri Sunderland, var nokkuð sáttur með 2-2 jafnteflið gegn Liverpool í dag.

Sunderland lenti 2-0 undir í leiknum, en liðið kom til baka og náði í mikilvægt stig og var Allardyce ánægður með baráttuna í sínum mönnum.

"Þú heldur að dagurinn þinn sé búin þegar þú ert 0-2 undir á Anfield," sagði Allardyce í viðtali eftir leik.

"Við komust þó aftur inn í leikinn með tveimur flottum mörkum, en við náðum í þetta stig með því að gefast ekki upp."

"Við börðumst til enda. Þegar við lentum tveimur mörkum undir þá virtist óttinn fara úr liðinu og við spiluðum betur með boltann. Við sköpuðum færi og það voru gæðin í mörkunum sem skiluðu okkur þessu stigi."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner