ÍBV hefur fengið enska miðjumanninn Jonathan Barden til sín á reynslu.
Barden er 22 ára gamall en hann hefur undanfarin ár leikið með liði háskólans James Madison University í Bandaríkjunum.
Hann kom til landsins í dag og mun æfa með liði ÍBV næstu daga í Eyjum.
Eyjamenn eru að styrkja sig fyrir átök sumarsins en fyrr í vikunni samdi norski varnarmaðurinn Tom Skogsrud við liðið.
Athugasemdir