Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 06. mars 2015 09:30
Magnús Már Einarsson
Gabriel ekki með Arsenal næstu þrjár vikurnar
Gabriel Paulista.
Gabriel Paulista.
Mynd: Arsenal
Gabriel Paulista, varnarmaður Arsenal, verður frá keppni næstu þrjár vikurnar vegna meiðsla.

Gabriel meiddist aftan í læri í sigrinum á QPR í vikunni.

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur nú staðfest að Gabriel verði frá keppni næstu þrjár vikurnar.

Betri fréttir eru af markverðinum Wojciech Szczesny en hann verður líklega í markinu í bikarleiknum gegn Manchester United á mánudag.

,,Hann fer í rannsóknir í dag. Ef hann kemst vel í gegnum þær þá mun hann spila á mánudag," sagði Wenger.
Athugasemdir
banner
banner
banner