Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 06. mars 2015 19:30
Brynjar Ingi Erluson
Montella: Salah er mun betri en við bjuggumst við
Mynd: Getty Images
Vincenzo Montella, þjálfari Fiorentina á Ítalíu, segir að áhrif Mohamed Salah á liðið vera mun meiri en hann bjóst við.

Juan Cuadrado gekk til liðs við Chelsea undir lok janúargluggans fyrir 31 milljón evra frá Fiorentina og kom Salah í skiptum en þó einungis á lánssamning.

Hann hefur verið stórkostlegur með Flórensarliðinu en hann er nú þegar kominn með 6 mörk í 7 leikjum fyrir félagið og virðist hafa fundið sig á ný.

Hann skoraði bæði mörk liðsins í 2-1 sigri þess á Juventus í fyrri undanúrslitaleik liðsins í ítalska bikarnum en Montella er ánægður með vængmaninn öfluga.

,,Allt liðið er að vaxa, ekki bara Salah, þó svo hann er að skora mikið af mörkum. Hann hefur aðlagast liðinu fljótt og við vissum að hann væri öflugur en við bjuggumst ekki alveg við þessari byrjun hjá honum," sagði ítalski þjálfarinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner