Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 06. mars 2015 11:00
Magnús Már Einarsson
Umboðsmaður Balotelli: Rodgers hjálpar honum að þroskast
Mynd: Getty Images
Mino Raiola, umboðsmaður Mario Balotelli, segir að Brendan Rodgers stjóri Liverpool sé að hjálpa leikmanninum að þroskast.

,,Í augnablikinu er mjög áhugaverður kafli á ferli Balotelli," sagði Raiola.

,,Hann hefur fundið þjálfara sem biður hann um hluti sem hann hefur ekki gert hingað til, þar á meðal að sýna aga og hlaupa án bolta."

,,Það hjálpar honum að þroskast sem persóna og sem fótboltamaður."

,,Hann mun verða ennþá sterkari. Hann er stoltur af liði sínu og það er mikilvægast."

Athugasemdir
banner
banner