Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 06. mars 2018 21:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Aðeins einn annar leikmaður afrekað það sem Ronaldo gerði í kvöld
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo og félagar í Real Madrid eru á leiðinni í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar.

Liðið er 2-1 yfir gegn Paris Saint-Germain og samanlagt 5-2 yfir eftir að hafa unnið fyrri leikinn.

Real Madrid er ríkjandi Evrópumeistari, en það er afrek sem Cristiano Ronaldo á stóran þátt í.

Ronaldo skoraði fyrra markið í kvöld en hann hefur verið ótrúlegur í Meistaradeildinni síðustu misseri. Hann hefur núna skorað í níu leikjum í röð í keppninni en aðeins einn annar leikmaður hefur gert það, Ruud van Nistelrooy.

Van Nistelrooy gerði það með Manchester United árið 2003.



Athugasemdir
banner
banner