Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 06. mars 2018 15:38
Elvar Geir Magnússon
Andlát Astori bar ekki að með saknæmum hætti
Astori var fæddur 1987.
Astori var fæddur 1987.
Mynd: Getty Images
Davide Astori fór í hjartastopp í svefni eins og fyrst var talið. Þessi fyrirliði Fiorentina lést aðfaranótt sunnudags.

Greint var frá því í gær að rannsakað væri hvort um morð hefði verið að ræða en nú hefur það verið útilokað.

Astori verður jarðsettur í Flórens á fimmtudag.

Öllum sunnudagsleikjum ítalska boltans var frestað vegna andlátsins sem gerðist nóttina fyrir leikdag. Fiorentina átti að mæta Emil Hallfreðssyni og félögum í Udinese.

Liðsfélagar Astori brutu upp hurðina að hótelherbergi hans þegar hann mætti ekki í morgunmat á leikdegi.

Sjá einnig:
Fiorentina og Cagliari leggja treyjunúmer Astori niður


Athugasemdir
banner
banner
banner