Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 06. mars 2018 14:33
Elvar Geir Magnússon
Dybala að gera nýjan samning við Juventus
Dybala er 24 ára.
Dybala er 24 ára.
Mynd: Getty Images
Argentínumaðurinn Paulo Dybala er nálægt því að gera nýjan samning við Ítalíumeistara Juventus.

Dybala hefur verið orðaður við Manchester United en hann er ein allra skærasta stjarna Juve. Einnig hafa verið sögusagnir um áhuga frá Barcelona og Real Madrid.

Dybala mun gera fimm ára samning sem færir honum 120 þúsund pund í vikulaun.

Dybala hefur átt kaflaskipt tímabil, skorað 15 mörk í 21 leik í ítölsku A-deildinni en ekki tekist að skora í Meistaradeildinni.

Dybala skoraði sigurmarkið gegn Lazio á dögunum.

Hann verður í eldlínunni á morgun þegar Juve mætir Tottenham í seinni viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar, fyrri leikurinn endaði 2-2 en þá var Dybala meiddur. Leikurinn á morgun verður á Wembley.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner