Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 06. mars 2018 23:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Karius haldið hreinu í 62,5% leikja sem hann hefur spilað
Mynd: Getty Images
Loris Karius er farinn að falla betur í kramið hjá stuðningsmönnum Liverpool en hann hefur staðið sig vel í síðustu leikjum.

Hann stóð vaktina í markalausu jafntefli við Porto í kvöld en hafði þó ekki mikið að gera þar sem Porto átti aðeins eina tilraunum í leiknum sem rataði á markrammann.

Leikurinn var heilt yfir mjög rólegur.

Karius gengur sáttur frá borði enda er Liverpool komið áfram og að auki hélt hann hreinu. Hann er núna sá markvörður sem hefur haldið oftast hreinu í Meistaradeildinni á þessu tímabili.

Hann hefur haldið hreinu fimm sinnum eða í 62,5% af leikjunum sem hann hefur spilað í keppninni.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner