Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 06. mars 2018 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Mourinho má ekki endurtaka fyrir framan myndavélar
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho hélt ekki aftur að sér í hálfleiksræðunni er Manchester United heimsótti Crystal Palace í enska boltanum á mánudaginn.

Man Utd átti skelfilegan fyrri hálfleik og var marki undir er liðin gengu til búningsklefa. Heimamenn tvöfölduðu forystuna skömmu eftir leikhlé en Rauðu djöflarnir gáfust ekki upp og unnu leikinn 3-2.

„Ég má ekki endurtaka helminginn af því sem ég sagði í hálfleik fyrir framan myndavélar," sagði Mourinho eftir endurkomuna.

„Ég sagði nokkur vel valin orð, ég efaðist um baráttuviljann og fékk jákvæð viðbrögð.

„Að koma til baka eftir að hafa lent 2-0 undir gegn liði í fallbaráttu er frábært, tilfinningin er góð."

Athugasemdir
banner
banner