Páll Viðar Gíslason, þjálfari Magna á Grenivík, framlengdi samning sinn við félagið á herrakvöldi félagsins síðastliðinn föstudag.
Páll er nú samningsbundinn út tímabilið 2020.
Páll er nú samningsbundinn út tímabilið 2020.
„Samningur hans átti að renna út núna í haust og erum við Magnamenn mjög svo ánægðir með að hafa náð samkomulagi við Palla og tryggt okkur hans starfskrafta næstu þrjú tímabil," segir í tilkynningu Magna.
„Palli Gísla hefur unnið frábært starf fyrir félagið og komið okkur á þann stað sem við viljum vera á, það er að spila fótbolta á sem hæsta klassa."
Páll Viðar náði því afreki að stýra Magna upp í Inkasso-deildina á síðasta tímabili.
Athugasemdir