Hverjir eru tíu bestu asísku fótboltamenn sem spilað hafa í ensku úrvalsdeildinni? Football365 setti saman lista.
10) Seol Ki-hyeon (Reading, Fulham) - Suður-Kóreumaðurinn gekk í raðir Reading 2007 en fór til Fulham eftir að hafa lent upp á kant við Steve Coppell knattspyrnustjóra. Náði ekki að gera neitt á Craven Cottage.
9) Maya Yoshida (Southampton) - Hefur reynst Dýrlingunum dyggur þjónn í mörg ár þrátt fyrir að eiga oft ekki fast sæti. Er enn í fullu fjöri hjá Southampton.
8) Lee Young-Pyo (Tottenham) - Lék 70 úrvalsdeildarleiki og er betri leikmaður en margir telja. Átti sitt besta tímabil 2005/06.
7) Sun Jihai (Manchester City) - Fyrsti Kínverjinn sem skoraði í enku úrvalsdeildinni. Var sjö ár hjá City og spilað næstum 150 úrvalsdeildarleiki.
6) Shinji Kagawa (Manchester United) - Fyrsti japanski leikmaðurinn til að verða Englandsmeistari. Lenti upp á kant við David Moyes.
5) Ki Sung-Yueng (Swansea City, Sunderland) - Leikmaður ársins hjá Swansea 2014/15. Er oft ekki áberandi en skilar sinni vinnu vel.
4) Shinji Okazaki (Leicester City) - Það eru þrír Englandsmeistarar á listanum en enginn sem vann titilinn eins óvænt og Okazaki!
3) Ali Al-Habsi (Bolton, Wigan) - Ómaninn varð ekki markvörður fyrr en hann var 17 ára og var að spila í C-deildinni heima en endaði í ensku úrvalsdeildinni.
2) Son Heung-Min (Tottenham) - Sjóðheitur með Spurs og er bara 25 ára. Líklegur til að vera á toppnum á þessum lista einn daginn. Er orðinn ofurstjarna í Suður-Kóreu og er í uppáhaldi margra fótboltaunnenda.
Athugasemdir