Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 06. maí 2016 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Liverpool beint í riðlakeppni Meistaradeildarinnar með sigri
Mynd: Getty Images
Liverpool er aðeins einum sigri frá því að tryggja sæti sitt í riðlakeppni Meistaradeildarinnar á næsta tímabili þegar liðið mætir Sevilla í úrslitaleik Evrópudeildarinnar 18. maí.

Þetta hefur ekki áhrif á önnur lið í ensku úrvalsdeildinni þar sem efstu þrjú liðin fara beint í riðlakeppnina og fjórða sætið í undankeppnina.

„Ég er ekki 100 prósent viss um hvernig reglurnar eru varðandi þetta, ég hef ekki skoðað það nógu vel," sagði Klopp áður en fréttamaður útskýrði reglurnar fyrir honum.

„Þakka þér fyrir. Ég segi strákunum þetta um leið og færi gefst," sagði Klopp eftir að hafa fengið fregnirnar.

Liverpool er í 8. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og litlar líkur á því að félagið geti unnið sig upp í Evrópusæti í lokaumferðunum.
Athugasemdir
banner
banner