Spánar- og Evrópumeistarar Barcelona hafa staðfest kaupin á tyrkneska landsliðsmanninum Ardan Turan frá Atletico Madrid.
Þetta staðfesti Katalóníuliðið á opinberum Twitter aðgangi þess nú rétt í þessu.
Þetta staðfesti Katalóníuliðið á opinberum Twitter aðgangi þess nú rétt í þessu.
Samkvæmt spænskum fjölmiðlum greiðir Barcelona 41 milljón evra fyrir hinn 28 ára Turan sem var einn besti leikmaður Atletico þegar liðið varð spænskur meistari leiktíðina 2013-14.
Turan mun þó ekki spila fyrir Barcelona á þessu ári þar sem félagið tekur út félagaskiptabann.
Athugasemdir