Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 06. júlí 2015 17:08
Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið KA og Fjölnis: Rajko í markinu
Rajko er í markinu hjá KA.
Rajko er í markinu hjá KA.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
KA og Fjölnir mætast í síðasta leik 8 liða úrslita Borgunarbikars karla klukkan 18:00. Byrjunarliðin eru tilbúin og þau má sjá hér að neðan.

Bjarni Jóhannsson þjálfari 1. deildarliðs KA ákveður að halda trausti við Srdjan Rajkovic í markinu en hann var fenginn til félagsins sem varamarkvörður í vetur. Hann átti stórleik þegar liðið sló Breiðablik út í síðustu umferð.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum

Ein breyting er á liði KA frá 1-1 jafntefli við Víking Ólafsvík um helgina. Ívar Örn Árnason kemur inn fyrir Hilmar Trausta Arnarsson sem er meiddur.

Hjá Fjölni eru tvær breytingar frá 1-3 tapinu gegn FH í síðustu umferð deildarinnar. Þórir Guðjónsson snýr aftur eftir leikbann og Atli Már Þorbergsson kemur inn líka. Út fara Arnór Eyvar Ólafsson og Ragnar Leósson.

KA
23. Srdjan Rajkovic (m)
3. Callum Williams
7. Ævar Ingi Jóhannesson
9. Elfar Árni Aðalsteinsson
10. Juraj Grizelj
11. Jóhann Helgason
16. Davíð Rúnar Bjarnason
19. Benjamin James Everson
21. Ívar Örn Árnason
22. Hrannar Björn Steingrímsson
25. Archange Nkumu

Fjölnir:
12. Þórður Ingason (m)
4. Gunnar Már Guðmundsson
5. Bergsveinn Ólafsson
6. Atli Már Þorbergsson
7. Viðar Ari Jónsson
9. Þórir Guðjónsson
10. Aron Sigurðarson
16. Guðmundur Böðvar Guðjónsson
18. Mark Charles Magee
22. Ólafur Páll Snorrason
29. Guðmundur Karl Guðmundsson

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum
Athugasemdir
banner
banner
banner