Watford hefur keypt miðjumanninn Etienne Capoue frá Tottenham en hann verður um leið dýrasti leikmaðurinn í sögu félagsins.
Nathan Ellington var áður dýrasti leikmaður Watford en hann kostaði 3,25 milljónir punda.
Ekki hefur verið gefið upp hvað Capoue kostaði en hann er í það minnsta dýrari en Ellington var á sínum tíma.
Nathan Ellington var áður dýrasti leikmaður Watford en hann kostaði 3,25 milljónir punda.
Ekki hefur verið gefið upp hvað Capoue kostaði en hann er í það minnsta dýrari en Ellington var á sínum tíma.
Capoue kom til Tottenham frá Toulouse árið 2013 en náði ekki að festa sig í sessi.
Þessi 26 ára gamli leikmaður mun nú hjálpa nýliðum Watford í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili.
Athugasemdir