„Fyrstu 10 mínúturnar. Þeir komu grimmir og refsuðu okkur fyrir okkar mistök og komust í 2-0 og það var bara á brattan að sækja fyrir okkur eftir það.“ Sagði Ágúst Gylfason þjálfari Fjölnis aðspurður um hvað hafði farið úrskeiðis eftir 2-1 tap gegn KA í Borgunnarbikarnum.
Lestu um leikinn: KA 2 - 1 Fjölnir
„Við settum mark og það varð smá leikur kanski hérna í lokin. En við náðum aldrei að skapa okkur nein góð færi eftir 2-1 þannig að tap og útúr bikarnum er mjög súrt.“
„Þeir sýndu það að þeir vildu meira og unnu okkur bara sannfærandi og ég óska þeim góðs gengis í undanúrslitunnum og það væri gaman að sjá þá í úrslitum.“
„Menn voru bara ekki tilbúnir og gerðu afdrifarík mistök. Þeir refsuðu okkur og það var erfitt fyrir okkur að koma til baka. Við reyndum hvað við gátum en það voru ekki nógu mikil gæði í okkur í dag og við förum hérna hundfúlir frá Akureyri.“
Nánar er rætt við Gústa í spilaranum fyrir ofan
Athugasemdir