Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 06. júlí 2015 12:00
Magnús Már Einarsson
Juan Cuadrado ekki á förum frá Chelsea
Juan Cuadrado.
Juan Cuadrado.
Mynd: Getty Images
Umboðsmaður Juan Cuadrado hefur blásið á sögusagnir þess efnis að hann sé á förum frá Chelsea í sumar.

Chelsea keypti hinn 27 ára gamla Cuadrado á 23,3 milljónir punda fyrr á þessu ári en honum hefur gengið illa að aðlagast lífinu í enska boltanum.

Cuadrado er þó ekki á förum frá Chelsea í sumar eins og orðrómur hefur verið um.

„Cuadrado er leikmaður Chelsea. (Jose) Mourinho vildi fá hann fyrir fimm mánuðum og hann hefur trú á honum," sagði Alessandro Lucci umboðsmaður Cuadrado.

„Hann á sér marga aðdáendur en ég endurtek að Juan er leikmaður Chelsea."
Athugasemdir
banner
banner
banner