mán 06. júlí 2015 09:00
Björgvin Stefán Pétursson
Man Utd hefur ekki haft samband vegna Kane
Fer Kane til United?
Fer Kane til United?
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur ekki haft samband við Tottenham vegna Harry Kane samkvæmt upplýsingum Sky.

Það er orðin útbreidd saga að Manchester United sé búið að hafa samband við Tottenham vegna Kane en samkvæmt heimildum Sky þá er það ekki rétt.

Fréttamaður Sky Sports, James Cooper, segir að Kane sé á blaði hjá Manchester United en að engar viðræður milli liðana hafi átt sér stað.

„Þetta er leit að framherja sem að inniheldur nafn Harry Kane, það er áhugavert." sagði Cooper.

„Hann er á lista yfir möguleg kaup sem að Manchester United gæti freystast til að gera í sumar."

„Það sem Manchester United er að gera er að þeir eru að skoða alla kosti sem þeir hafa í stöðunni. Það hafa engar viðræður átt sér stað á milli Old Trafford og White Hart Lane."
segir Cooper að lokum.
Athugasemdir
banner
banner