Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mán 06. júlí 2015 12:42
Elvar Geir Magnússon
Myndband: Vi har Ómarsson!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenski U21-landsliðsmaðurinn Elías Már Ómarsson var hetja Vålerenga í gær þegar hann skoraði bæði mörk liðsins í 2-1 útisigri gegn Odd Ballklubb.

Vålerenga er í þriðja sæti norsku úrvalsdeildarinnar, sex stigum fyrir aftan topplið Rosenborg.

Þetta voru fyrstu mörk Elíasar fyr­ir liðið en hann gekk til liðs við Vål­erenga frá Kefla­vík síðasta vetur.

Stuðningsmenn liðsins voru í skýjunum með frammistöðu íslenska sóknarleikmannsins og sungu "Vi har Ómarsson!" eftir leikinn eða "Við erum með Ómarsson!" eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi.

Þar fyrir neðan má sjá seinna markið sem Elías skoraði en það var ansi fallegt.



Markið:

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner