Topplið Þróttar gefur ekkert eftir í 1. deildinni en liðið sigraði Hauka 2-1 í 9. umferðinni. Aron Ýmir Pétursson og Karl Brynjar Björnsson voru öflugir í vörninni þar og þeir eru báðir í úrvalsliði umferðarinnar.
Tomislav Misura og Maciej Majewski hjálpuðu Grindvíkingum að landa þremur stigum gegn Þór og Sveinn Fannar Sæmundsson og Bjarni Mark Antonsson áttu góðan dag þegar Fjarðabyggð sigraði BÍ/Bolungarvík.
Guðmundur Atli Steinþórsson skoraði tvívegis í 2-1 sigri HK á Fram og þeir Admir Kubat og Elfar Árni Aðalsteinsson áttu fínan dag þegar KA og Víkingur Ólafsvík skildu jöfn.

Úrvalslið 9. umferðar:
Maciej Majewski (Grindavík)
Aron Ýmir Pétursson (Þróttur)
Karl Brynjar Björnsson (Þróttur)
Admir Kubat (Víkingur Ó.)
Sveinn Fannar Sæmundsson (Fjarðabyggð)
Andri Fannar Freysson (Haukar)
Bjarni Mark Antonsson (Fjarðabyggð)
Sebastien Uchechukwu Ibeagha (Fram)
Elfar Árni Aðalsteinsson (KA)
Tomislav Misura (Grindavík)
Guðmundur Atli Steinþórsson (HK)
Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið
Athugasemdir