Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   þri 06. október 2015 11:52
Magnús Már Einarsson
Alfreð Finnboga: Fannst það mjög skrýtin ákvörðun
Icelandair
Alfreð Finnbogason mætir á æfingu Íslands í dag.
Alfreð Finnbogason mætir á æfingu Íslands í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alfreð Finnbogason segir að móttökurnar í Grikklandi hafi verið skemmtilegar eftir að Olympiakos sigraði Arsenal 3-2 á útivelli fyrir viku síðan.

Alfreð skoraði sigurmarkið í leiknum en stuðningsmenn Olympiakos tóku vel á móti honum og öðrum leikmönnum við heimkomuna í Grikklandi.

„Við flugum heim daginn eftir. Við fengum fylgd með góðum mönnum á æfingasvæðið þar sem fólk tók á móti okkur. Það var mjög gaman að upplifa þetta. Þeir fara mjög hátt í sigrunum og mjög lágt í töpunum og það er gott að vera búinn að upplifa sigrana, sagði Alfreð við Fótbolta.net í dag.

„Það er mikil umfjöllun þarna. Maður skilur ekki orð í blöðunum og veit ekkert hvað er verið að segja en það hlýtur að vera eitthvað jákvætt."

Alfreð var áfram á bekknum hjá Olympiakos um síðustu helgi þrátt fyrir markið á Emirates.

„Mér fannst það mjög skrýtin ákvörðun. Ég er alltaf ósáttur við að byrja ekki. Ég þarf að spila fleiri leiki til að komast í gang svo að sjálfsögðu var ég ósáttur," sagði Alfreð.

Alfreð er í íslenska landsliðshópnum fyrir komandi leiki gegn Lettum og Tyrkjum í undankeppni EM. Íslenska liðið hefur þegar tryggt sér sæti á EM fyrir þessa komandi leiki.

„Við erum ekkert vanir þessu. Við þurfum að sýna að við séum atvinnumenn. Það þarf ekki að mótívera sig til að spila fyrir íslenska landsliðið og ég held að það verði ekki vandamál," sagði Alfreð.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner