Lars Lagerback, landsliðsþjálfari, segir að íslenska liðið muni ekki nálgast komandi leiki gegn Lettlandi og Tyrklandi öðruvísi þó að sæti á EM sé nú þegar tryggt.
„Þetta er svolítið sérstök staða því að við erum komnir áfram. Við þurfum að sýna 100% fagmennsku. Þetta er gott próf fyrir starfsfólkið og leikmenn. Við verðum að undirbúa okkur eins og þetta sé leikur sem skiptir öllu máli í undankeppninni," sagði Lars.
„Við getum líka komist í styrkleikaflokk þrjú fyrir dráttinn (á EM) og tveir sigurleikir eru mjög mikilvægir upp á það að gera."
Lars egist ekki reikna með stórvægilegum breytingum á byrjunarliðinu á laugardag.
„Það gætu orðið einhverjar breytingar en ég veit ekki hvort það verður ein, tvær eða þrjár. Það er allavega ljóst að það verður ein þar sem Aron (Einar Gunnarsson) er í banni," sagði Lars.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir