Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 06. október 2015 18:30
Magnús Már Einarsson
Pressley tekur við Eggerti og félögum
Mynd: Getty Images
Steven Pressley hefur verið ráðinn stjóri Fleetwood Town í ensku C-deildinni.

Eggert Gunnþór Jónsson spilar með Fleetwood og Grétar Rafn Steinsson er yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu.

Pressley tekur við af Graham Alexander sem var rekinn í síðustu viku eftir sjö leiki í röð án sigurs.

Pressley er 41 árs gamall en hann var síðast stjóri hjá Coventry.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner