Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 06. desember 2017 12:30
Magnús Már Einarsson
Dele Alli kominn með sama umboðsmann og Ronaldo
Mynd: Getty Images
Dele Alli, miðjumaður Tottenham, hefur samið við umboðsskrifstofuna CAA Sports.

Um er að sömu umboðsskrifstofu og Cristiano Ronaldo og Harry Kane eru með.

Carlo Ancelotti, James Rodriguez og fleiri stór nöfn eru einnig á mála hjá CAA Sports.

„Ég er ánægður með að ganga til liðs við CAA á þessum mikilvæga kafla á ferli mínum," sagði hinn 21 árs gamli Alli.

„Ég hlakka til að vinna með þeim."
Athugasemdir
banner