Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 06. desember 2017 06:00
Fótbolti.net
TM mót Stjörnunnar 2018
Fyrsta stórmót sumarsins!
Mynd: Stjarnan
TM mót Stjörnunnar fer fram á knattspyrnusvæði Stjörnunnar í Garðabæ 21. - 22. apríl og 28.- 29. apríl. Keppt er í 6. 7. og 8.flokki hjá strákum og stelpum.

Spilaður er 5-manna bolti í öllum flokkum og er spiltími hvers liðs að lágmarki klukkutími.

Leikið verður á eftirfarandi dögum:

7.flokkur karla – 21.apríl
8.flokkur karla og kvenna – 22.apríl
6.flokkur karla – 28.apríl
6.- 7.flokkur kvenna – 29.apríl

Þátttökugjald er 2.750 krónur og fylgja vegleg þátttökuverðlaun, auk þess sem þátttakendur fá að spreyta sig á hinum ýmsum þrautum og fara í liðsmyndatöku. Skráning er hafin hjá Davíð Sævarssyni framkvæmdastjóri TM mótsins á póstfanginu [email protected].

Facebook síða mótsins er: TM-mót Stjörnunnar
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner