Sjónvarpsþátturinn Fótbolti.net hóf dagskrá sína á ÍNN klukkan 20:30 í fyrrakvöld.
Þátturinn verður á dagskrá vikulega en upptaka af þættinum verður aðgengileg á Fótbolta.net frá föstudögum.
Lífleg og skemmtileg fótboltaumræða verður í þættinum í viku hverri og gestirnir munu koma úr ýmsum áttum.
Þáttastjórnandi verður Magnús Már Einarsson.
Gestir í fyrsta þætti
Ásgeir Börkur Ásgeirsson - Miðjumaður úr Fylki
Benedikt Bóas Hinriksson - Blaðamaður á Morgunblaðinu
Friðrik Dór Jónsson - Tónlistarmaður
Í fyrsta þætti var meðal annars rætt um fréttir líðandi viku sem og tónlist í fótboltanum.
Þá var einnig kíkt í heimsókn á æfingu hjá 3. flokki Fjölnis sem spreytti sig í dagskrárliðnum ,,Brögð og brellur" í umsjón Máté Dalmay.
Athugasemdir